Afmæliskveðja
Ekki eru nema átta mánuðir síðan við kvöddum hana í faðmi okkar. Mamma var mín helsta hetja í lífinu. Ég skil ekki hvernig hún fór að því að vakna á degi hverjum, vera heimsins besta mamma og lifa lífinu eftir allt sem hún gekk í gegnum. Persónulegar árásir í vinnu, einkalífinu og i pólitík tóku mjög á hana og okkur fjölskylduna en hún lét þó ei bugast og varð enn sterkari og ákveðnari en áður. Fráfall Guðjóns, mannsins hennar, fór mjög illa með hana enda mjög óvænt og átakanlegt. Eins og venjulega stóð hún þó bein í baki í gegnum þá erfiðleika sem fylgdu andláti hans og bloggaði hún mikið í gegnum sorgina. Það má segja að bloggið hafi verið ákveðin hjálp í vinnslu sorgarinnar og eignaðist hún marga góða vini í gegnum það. Þegar veikindin hrjáðu hana sótti hún styrk í kveðjurnar á blogginu og því voru þær ómetanlegar fyrir hana sem og okkur börnin. Þessir erfiðleikar eru þó einungis dropi í djúpu hafi.
Mamma synti á móti straumi allt sitt líf og var án efa fædd undir óheillastjörnu. Það má segja að þessi þrautarganga í gegnum lífið hafi mótað hana, gert hana eins frábæra og yndislega og hún var. Hún var einstaklega frábær hjúkrunarfræðingur og ekki síðri kennari. Náði hún að kenna mér margt faglegt sem ég mun búa við alla ævi. Hún kom starfsfólki 11 E sífellt á óvart, neitaði að gefast upp og sýndi þvílíka þrautseigju. Ótruleg hetja og mín helsta og besta fyrirmynd í lífinu. Hún var mín mamma, besta vinkona, systir, frænka og undir það síðasta litla barnið mitt. Í veikindunum hennar tengdumst við órjúfanlegum böndum. Á Krít sofnuðum við hönd í hönd og höfðum aldrei sofið jafnvel. Við höfðum ,,sleep over" á deildinni og dekruðum við hvor aðra. Ég sef nú með kápuna við hlið mér og finn enn mömmulykt. Enn stend ég mig að því að fara hringja í þig enda er þetta enn svo óraunverulegt. Ég þrái ekkert heitar en að knúsa þig og kyssa. Mig vantar svo mömmu mína, okkur Haffa vantar múttu okkar. Þú varst tekin frá okkur alltof snemma. Við höfum reynt að aðlagast lífinu án þín en það hefur gengið brösulega en við munum þó halda áfram að reyna því það hefði þú gert. Ég treysti því að amma knúsi þig og skáli við þig í dag með ABBA á fóninum því það verður allavega gert hér í Engjaselinu. Skál.
Til hamingju með daginn,
Love you 2 elsku besta mamma mín.
Sumarið
Lífið er allt að koma eftir andlátið en það gengur ooof hægt. Söknuðurinn og sorgin er oft svo mikil að maður getur varla andað..
En sumarið er komið og maður reynir að líta björtum augum á lífið... =)
Við erum búin að gera garðinn svo fínann! gróðursetja stjúpur í alla potta og taka til og slá.. Einnig erum við búin að gera það fínt á leiðinu hennar múttu... Vonandi er hún ánægð með okkur, ungana sína! =) Enda var garðurinn í uppáhaldi hjá henni ;)
Ég er svo á leiðinni austur á kirkjubæjarklaustur til Auju Binnu og verð þar í sumar! ég fékk vinnu í sundlauginni þar og hlakka bara til að byrja!
Ég er gríðarlega spennt að vera hjá Auju og co og hlaupa nakin um sveitina! hehehe (djók)
Annars vildi ég bara senda litla kveðju áður en ég fer í netleysið fyrir austan!
Knús og kram
Kata Björg
HANNES VINNUR
Ég vil þakka öllum fyrir frábæran stuðning !
sorg og SPARIrannsóknir
Ég byrjaði á Dropanum fimmtudag síðastliðinn og var farin heim 1 ½ tíma síðar. Ég náði að hjálpa þremur á fætur en brast svo í grát, fékk að fara heim og kúra með kápuna hennar múttu í fanginu. Já miklu erfiðara en ég nokkurn tímann bjóst við.
Nú ligg ég undir sæng, að verða veik og með pínulítið hjarta. Eins og ég sagði alltaf við múttu þegar mér leið illa.. mér er illt í hjartanu.
Ég og Daffi horfðum á Ísland í dag þar sem talað var við tvær ekkjur sem misstu menn sína fyrir skömmu. Þær töluðu um hvernig kerfið hafði brugðist þeim og að það hefði jafnvel hægt að koma í veg fyrir dauða þeirra með markvissari rannsóknum og betra eftirliti.
Mamma var í eftirliti. Hún þurfti reyndar að hafa frumkvæðið í að ná í lækninn til að fá tíma í myndir og svo frv. Margar rannsóknir gerðar vegna verkja sem hún þjáðist af en aldrei fannst alvöru orsökin. Með einfaldri MRI mynd hefði verið hægt að sjá hve stórt meinið var og jafnvel gripið fyrr inni í ferlið. Mamma hefði þá ekki þurft að þjást svo mikið og við jafnvel átt lengri tíma með henni.
Svörin sem við fengum frá læknum hennar þegar við spurðum af hverju þessi rannsókn var ekki gerð fyrr voru orðrétt: ,, Þetta er SPARIRANNSÓKN". sparirannsókn....
Já.. Kreppan hefur meiri áhrif en maður vill vita. Rannsóknir sem gætu lengt líf, aukið lífsgæði og jafnvel bjargað mannslífum eru kallaðar SPARIrannsóknir.
Þegar krabbamein er um að ræða er aldrei of varlega farið. Eftirlit er svo gríðarlega mikilvægt eftir að þú hefur greinst með meinið. Það á ekki að þurfa að SPARA þegar spurningin gæti verið upp á líf og dauða. Verið frek og biðjið um þessa aukasparnaðarmynd ef þið haldið að þess þurfi. Hún gæti lengt líf þitt.
Ykkar "reiðaútíkerfið"
Katan
gudrunjona.blogg.is
Mig langar að birta blogg sem mamma skrifar 14. mars 2007. Það er stuttu eftir andlát Guðjóns. Margar sögur voru í gangi og ljót orð látin falla í okkar garð. Mér finnst þessi færsla eiga vel við þessa dagana, sérstaklega fyrir hann Pabba minn. Pabbi, það er eins gott að þú lest þetta:)
,,Öll þekkjum við það að upplifa neikvæða strauma í kringum okkur; heima, á vinnustað, í samfélaginu, skólum, saumaklúbbum o.s.frv. Þeir eru hluti af blessaðri tilverunni og hjá þeim verður vart hjá komist. Yfirleitt eru þeir einstaklingar sem senda slíka strauma, afar vansælir sjálfir og "smita" umhverfið í kringum sig. Oftast eru slík tímabil tímabundin hjá viðkomandi en stundum er um viðvarandi ástand að ræða sem þróast í jafnvel enn alvarlegri hluti eins og skítkast og rógburð. Þá þætti þekkjum við einnig vel, alls staðar má finna einhvern, á öllum aldri og þjóðfélagsstigum sem viðhefur slíka framkomu.
Nærtæk dæmi um rógburð og illmælgi í garð nánungans má finna í öllum samfélögum og gjarnan eru það sami/sömu aðili/-ar sem eru að verki hverju sinni. Svo virðist sem sumir festist í því hutverki að vera stöðugt neikvæðir og síleitandi af einhverju neikvæðu um nánungann til að velta sér upp úr. Nú, ef ekkert finnst, þá er ekkert mál að "finna eitthvað upp". Líf þessara einstaklinga virðist ganga út á það að vera "fréttamenn" á staðnum og vera fyrstir með krassandi "fréttir". Slíkir "fréttamenn" eru gjarnan kallaðir "Gróa á leiti" sem allir þekkja þegar þeir hafa frá einhverju spennandi að segja en enginn vill kannast við þegar aðspurðir. Secret
Sum staðar er Gróa talin vera "þorpsfíflið" af íbúunum sem þeir snúa sér að þegar þeir vilja koma einhverjum "fréttum" á framfæri sem endilega eiga að berast með ógnarhraða um samfélagið. Við þekkjum þetta öll og það merkilega er að margir taka afstöðu og dæma nánungan út frá véfréttum Gróu Confused
Um hina neikvæðu, vansælu einstaklinga hefur margt verið ritað og ort, máltæki og ljóð enda hafa þeir fylgt samfélögum í gegnum árhundruðin. Það er alltaf auðveldara er að sjá flís í augum annara en bjálkan í augunum á sjálfum sér og sakar ekki að minna sjálfan sig á það.
Enginn lái öðrum frekt,
einn þótt nái að falla.
Hver einn gái að sinni sekt,
syndin þjáir alla.
(Agnes Magnúsdóttir)
Það er ansi oft sem menn eru neikvæðir, illkvittnir og kasta úr glerhúsunum, við komumst ekki hjá þeim einstaklingum í lífinu. En við höfum val, við þurfum hvorki að hlusta á þá né fylgja. Það eru þeir sem tapa. Við skulum ekki gleyma því."
Magnað!
ykkar,
Kata Björg
Dóttir Hannesar Sigmarssonar
Ég vil koma fram þakklæti til þeirra sem hafa sýnt okkur stuðning á þessum erfiðu tímum. Auja frænka hefur staðið eins og klettur hjá okkur og sakna ég hennar ótrúlega. Einnig hafa systkini mömmu breitt verndarvæng yfir okkur systkinin. Það má með sanni segja að við eigum góða að.
Nú er ég og Haffi bara ein í kotinu eftir að hafa skroppið austur til pabba og er það óneitanlega tómlegt.. En við þurfum að rífa okkur upp og takast á við þetta undarlega líf.. Sorgin er svo rosalega mikil að það er erfitt að hugsa að allt verði í lagi. Við þurfum að taka okkur ársfrí frá námi til að ganga frá öllu og bara jafna okkur aðeins. Ég er komin með vinnu á Droplaugastöðum, gamla vinnustaðnum mínum en Ragnheiður og co taka mér með opnum örmum.

Það virðist aldrei vera lognmolla í kringum okkar ástkæru fjölskyldu en nú er hann pápi minn að standa í erfiðu máli fyrir austan. Ég er dóttir Hannesar Sigmarssonar yfirlækni sem er verið að ráðast á. Þetta minnir mig óneitanlega á málið hennar mömmu þar sem hún var sökuð um þesssar blessuðu sjúkrarskrár... Auðvitað var ekkert hægt að sanna en það kom ekki veg fyrir að mannorð hennar var aldrei samt eftir það. Þið sem hafið eitthvað á samviskunni í þessum málum, hugsið um eitt orð: KARMA Þeir sem standa fyrir svona ásökum og leiðindum eru ekki að gera sér grein fyrir að þetta fólk á fjölskyldur. En mamma stóð með bakið breitt og sigraði þá lotu með stæl. Ég hef enga trú á öðru en að hann Pabbi gerir það líka enda blásaklaus með öllu og strangheiðarlegur maður.
Þið sem eruð að pæla í að ásaka einhvern um eitthvað án þess að sannanir liggja fyrir.. Svona ásakanir eru ekki svo auðveldlega teknar til baka. Skaðinn er skeður. Hugsið málið betur því þetta mun alltaf koma í bakið á ykkur..
Ykkar Katan
Jarðaför
Blóm og kransar eru EKKI afþakkaðir að ósk mömmu enda mikil blómakona!
Ykkar,
Katan og Haffi
Baráttu lokið
Við þökkum ykkur öllum innilega fyrir allan stuðning og hlýhug í okkar garð. Kveðjurnar veittu henni og okkur ómetanlegan styrk í baráttunni.
Kveðja,
Haffi og Kata
þáttaskil
Því miður eru ekki góðar fréttir héðan. Ákveðin þáttaskil hafa orðið í dag í baráttunni hennar mömmu.
Við viljum biðja ykkur að kveikja á kertum fyrir hana senda henni hlýja strauma.
Við munum láta vita um framvindu mála.
kveðjur, Katan og Haffi
EFast um tilvist þann stóra þarna uppi...
Já það eru sem sagt ekki góðar fréttir hérna megin. Sjúkdómurinn er harður, verkirnir miklir og illa gengur að verkjastilla hana. Himinháir skammtar af lyfjum slá ekkert á þannig að vanmáttar tilfinningin yfirtekur mann. Ekkert sem maður getur gert, sagt eða hugsað svo að ástandið lagist. Við systkinin vökum yfir henni 24/7 og höfum við tekið upp vaktarplan til að dreifa aðeins álaginu en þreytan er heldur mikil þessa dagana.
En mamman hefur ekki sagt sitt síðasta og hefur brotið allar reglur hingað til. Það er aldrei hægt að segja til um framhaldið þar sem hún heldur áfram að standa upp og neitar að gefast upp.
Hún er mín hetja.

